Annasöm vika á enda. Í farsælu samstarfi við Blómstrandi Belgi (Blooming bellies) fór ráðstefnan okkar fyrir óléttar konur vel fram og aðsókn var góð. Allir glaðir og ánægðir með útkomuna og stefnt er á sambærilegan viðburð að ári.
Mamma og pabbi eru endurheimt frá Bjarka bróður, minna sólbrún en búast mátti við. Höfðu víst horft á Formúluna í hagl-rigningu, skínandi sól og flestu þar á milli. Veðráttan á Raufarhöfn var nefnd til samanburðar. Gott frí engu að síður og sólin skein þeim til heiðurs í Hong Kong í fyrsta skipti í langan tíma. Hér hefur verið kalt með eindemum og þrátt fyrir ágætan dag sit ég í tveimur flíspeysum við bloggunina. Með gashitarann við hliðina á mér var kvöldmaturinn þó snæddur úti í garði eins og venjulega á ekki að vera nokkuð mál í marsmánuði hérna megin. Mikið held ég að mamma og pabbi séu glöð að eiga þó eina dóttur sem þykir myndarleg í eldhúsinu.
Nýju meðleigjendurnir eru að standast allar væntingar. Ekki var hægt að merkja muninn á Íslandi (290þús) og Hong Kong (7,5milljónir) þegar við settumst niður fyrsta kvöldið til að bera saman vinahópinn ef ske kynni að við þekktum sama fólkið. Jamie tók sér góðan umhugsunarfrest en síðan ég kom að skoða í fyrsta skiptið hefur hann þóst þekkja mig einhvers staðar frá. Hann áttaði sig einhvern tímann eftir miðnætti að ég hefði verið ljóshærð og stutthærð fyrir nokkrum mánuðum síðan og rak minni til hrekkjavökunnar og Flugleiðabúningsins. Maður verður nú varla frægur fyrir minna....
Leiktímabilið er yfirstaðið í bili þótt eina og eina helgina verði leikinn vináttuleikur. Ég var ekki valin í lokahóp landsliðsins svo ég stefni í offitu og hjartavandamál nema ég finni mér annað sport. Mér var bent á, með réttu, að ég væri ekki búin að búa í HK nógu lengi til að uppfylla kröfur alþjóðlega rúgbýsambandsins en yrði það að ári liðnu svo þangað til mætti ég gjarnan auka þol mitt til langhlaupa. Ég þurfti nú ekkert beep-test eða armbeygjumaraþon til að benda mér á það en þakka pent fyrir tækifærið til æfinga með þeim og mun líklega auka þolið töluvert.
Eða ekki.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli