Það vita flestir að ég er frá Kópaskeri. Ég og aðrir Núpsveitungar allt frá tímum Snartar landnámsmanns höfum þurft að verja skerið okkar góða sem virðist hafa fengið á sig skítapleis-stimpil og það jafnvel frá fólki sem aldrei hefur Öxarnúpinn litið. Íslendingar hafa gaman að því að gera grín að staðnum, nafninu, fólkinu sem þar býr. Fræg er orðin tillaga pólitíkusanna um að leggja bara staðinn niður og borga fólki fyrir að flytja á malbikið og hver man ekki eftir áramótaskaupinu hér um árið. Halllóó Kópaskeer...! Ég hef margoft þurft að telja upp staði á landinu sem færri íbúum skarta því einhvern veginn finnst meðal jónum landsins að fæstir hljóti að búa á Kópaskeri af öllum stöðum. Flestir eru sammála um að nafninu sé um að kenna, þykir Skersnafnið benda til þess að vera útnári í eymd. En halló, hvað um HAUGANES?
Ég skal glöð viðurkenna að ég er haldin fordómum um Breiðhyltinga. Allir sem skjóta úr byssum á hættulegum stöðum, díla með fíkniefni og berja saklausa eru úr Breiðholti í mínum huga. Reykvíkingar upp til hópa eru malbiksrottur og fá hland fyrir hjartað ef farið er framyfir borgarmörkin. Egilsstaðabúar eru allir í dýrðarljóma og allt gott kemur einhvers staðar að norðan. Allir eiga að fara í sveit og borða mold á fyrstu árunum. Ég er líklega fordómafyllst allra. Hvað finnst Haugnesingum um málið?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli