Hægðir mínar fara nú loksins harðnandi eftir tveggja daga skitu. Veikindin sem byrjuðu með svitaköstum og spýju voru jafnvel skrifuð á kostnað timburmanna eftir djammið mikla um helgina en ég er horfin frá þeirri kenningu. Ég hef fársjúk verið og skrifa það á matareitrun sem bæði Jamie sambýlingur og Damian vinur minn fengu líka.
Ég er slöpp og svefnlaus þessa dagana, í hægagangi bara. Það er mér til happs að páskarnir eru á næsta leyti svo það gefst tími til að endurhlaða orkustöðvarnar. Ég er vel byrg af bókum og útsaumi svo ég þarf lítið að yfirgefa beddann. Meira að segja bloggið tekur á svo best er að hætta í bili - skrifa heldur meira þegar ég hef frá merkilegri athöfnum að segja en klósettferðum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli