laugardagur, mars 19, 2005

IDOL

Ég hef lítið fylgst með þessu æði sem Idolið er. Hef aðeins einn þátt séð, lokaþáttinn í því ameríska fyrir um ári síðan. Þekki ekki Kalla, aldrei séð Hildi Völu. Ég vissi ekki alveg hverju ég átti von á þegar ég var beðin að koma að skipulagningu og uppsetningu á Idolinu hér í bæ. Ég veit það eitt að Kínverjar eru hræðilegir söngvarar og var því tilbúin með eyrnatappana. Þegar til kom var þetta hin ágætasta skemmtun þótt ekki hafi farið mikið fyrir stórsöngvurum. KPMG hélt showið og fulltrúar mismunandi deilda hristu sig og skökuðu á sviðinu. Ég hefði átt að taka lagið sjálf.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli