Hér sé skidekalt. Kuldaviðvörun upp á annan hvern dag og ég held hvern dag að sá næsti verði bærilegri. Veðráttan er með óvenjulegasta móti en ég held staðföst í statistíkina og lét sauma efnislítinn búning á mig fyrir Rugby 7s. Við verðum einar 10 saman í Xena warrior prinsess búningi sem ekki býður upp á mikið skjól fyrir veðri og vindum. Búið að spá 19-21 gráðum um næstu helgi og nokkurri sól.
Mamma og pabbi komu að horfa á mig í rúgbý í dag. Fóru ekki miklum orðum um hæfileika mína eða aðdráttarafl íþróttarinnar en ég sá þau voru þrútin af stolti yfir að eiga svona íþróttadóttur. Ræddi málin við kanadíska vini mína sem stungu því að mér að líklega væri ég eini íslendingurinn í heiminum sem spilar ruðning. Ég væri ekki hissa ef rétt væri. Auglýsi hér með eftir upplýsingum um hið gagnstæða.
Heimsmeistarakeppnin dregur að sér fólk úr öllum áttum til Hong Kong. Damian vinur minn kemur á morgun frá Bretlandi og Terry frá Ástralíu. Við sjáum fram á gleðilega endurfundi gamla gengisins sem ekki hefur verið saman komið síðan í janúar 2004. Ég er að hlaða myndavélina fyrir allt sem framundan er og mun uppfæra albúmið hið fyrsta þegar ég ranka aftur við mér eftir mótið.
Er frosin föst við aaaaaa takkann........
Engin ummæli:
Skrifa ummæli