föstudagur, nóvember 16, 2007

Vetrarhörkur


Hér er farið að hausta. Jakkar og pasmínur eru dregin fram og hrollur sækir að manni þegar observatory er skoðuð á morgnanna. Eins og vel uppalinn Íslendingur hef ég hvern dag á að skoða veðurspána sem sannarlega er lítið spennandi miðað við þá íslensku þar sem von er á fjórum árstíðum á einum degi. Hér er yfirleitt bara heitt og rakt/rigning eða heitt og þurrt. Íslenskar orðabækur eru uppfullar af orðum yfir hreyfingu lofts en hér nota menn aðeins tvær skilgreiningar yfir gjólu/golu/garra/vind/rok/storm....og það er 'windy' eða 'typhooon'. Það þætti mér gaman að sjá íslenska veðurfræðinga endast í starfi í Hong Kong, tel það víst að þeir myndu hiksta svolítið á fréttaflutningi af smá vindhviðum þegar þeir neyðast til að kalla þær fellibyl og ráðleggja fólki að halda sig heima.


En hitatölurnar ljúga engu til. Mér finnst full snemmt að sjá hitamælinn skríða niður fyrir 20 gráðurnar og tel víst að hitinn hafi haldist hæfilegur fram undir byrjun desember í fyrra. Til að betur fylgjast með þessu í framtíðinni ætla ég að reyna að hefja bloggin á veðurtölum svo á næsta ári geti ég gert marktækan samanburð.


Núna eru altso fallegir sólríkir dagar en hitinn kominn niður í 17-21 gráður suma daga. Um helgina á að vera 21-26 gráður en það sýnist mér að sjóbrettaæfingar verði að bíða eitthvað fram á næsta vor - kuldi hefur alltaf verið mitt kryptonite.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli