mánudagur, nóvember 12, 2007

Helgarlok



Enn ein vikan liðin hjá, sú 45ta þetta árið. Stutt vinnuvika hjá mér í tilefni heimsóknar Elsu vinkonu sem stoppaði í 55 klukkutíma í Hong Kong. Hver einasta mínúta var vel nýtt og Elsa hefur nú séð og gert fleiri hluti í Hong Kong en margir aðrir gestir sem þó stoppuðu í viku en við öðru var nú ekki að búast þegar svona orkupési á í hlut.


Beetlebug kom okkur alla leið upp á Peak þar sem við fengum að sjá nokkuð ómengað útsýni yfir borgina. Elsa sýndi snilldartakta á sjóbrettinu sem hún steig á í fyrsta skipti í Humarflóa en það var nú ekki að sjá því hún tók Sjóbretti 101 á klukkutíma og útskrifaðist með stæl. Þá var hún drifin í hike með Bjarti Loga, íslenskum kínverja sem vinnur með henni hjá Glitni. Fjallgangan endaði í Stanley þar sem ég gaf þeim 45 mínútur til að versla allskyns túristadót en við Elsa fundum 66gráður norður úlpu á rekka med KSÍ lógóinu ásaumuðu. Í takt við annað kínverskt fake drasl var búið að klína 'Skíðasamband Íslands' á úlpuna líka, beint fyrir ofan KSÍ merkið.
Eftir stórkostlegt íslendingapartý þar sem boðið var upp á íslenska hákarl og íslenskan vodka blandaðan í Vatnajökul var heilsan heldur rýr á laugardagsmorgni en við spruttum samt á fætur nokkuð snemma til að fara í morgunmat á þakinu Bjarka og Strúllu. Foreldrar Strúllu eru í heimsókn og eins og ekta íslensk húsmóðir var tengdamóðir Bjarka búin að töfra fram allskyns kræsingar sem kannski voru ekki gerð eins góð skil og þeim bar vegna bágs ástands viðstaddra. Við máttum svo afsaka okkur eftir stutta viðdvöl því við þurftum að fara og sækja lyklana að nýju íbúðinni!
The Zenith, http://www.thezenith.hk/, verður næsti viðkomustaður og enn á ný eyddi ég degi í að pakka mínu hafurtaski niður í töskur og box. Vesalings eigur mínar eru að verða þvældar og slitnar eftir alla þessa flutninga sem eiga sér stað minnst einu sinni á hverju ári, stundum 2x - ég er orðin sérfræðingur í flutningum. Á móti kemur að ég næ að henda miklu í hverri törn og því á ég næstum ekkert uppsafnað drasl sem aldrei er nýtt. Ég hef vissulega tendens í að hamstra hluti svo kannski er þetta bara gott fyrirkomulag til að halda söfnunaráráttunni í skefjum.
Eftir æsispennandi rúgbýleik var Elsu skutlað á völlinn með 8 ipoda í smygl. Við Petra urðum eftir og eyddum sunnudegi í pakk. Góð helgi að baki með góðu fólki sem allt er velkomið aftur. Heilsur heim.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli