mánudagur, nóvember 26, 2007

Mánudagsritl

Lagt hefur verið til að íslenska orðið yfir 'blogg' verði 'ritl' sem ég tel heilshugar undir og mun nota héðan af. Mér finnst samt nýyrðasmiðir ekki nógu snöggir í svifum því erfitt er að breyta orðnotkun sem náð hefur að festast í sessi. Þegar ég hafði átt gemsa í þó nokkur ár var farið að spá í hvað ætti að kalla þessa 'nýjung' á íslensku og eftir margar tillögur og kosningar, var orðið 'gemsi' auðvitað valið því það hafði hann verið kallaður alveg frá því að fyrstu eiturlyfjasalarnir eiguðust þá.

Ég hlakka nú mikið til næstu helgar. Ekki nóg með að ég muni spila minn fyrsta landsleik á erlendri grundu, stolt í Hong Kong búningnum, heldur markar þetta líka endinn á æfingaprógrammi sem samanstendur af rúgbýæfingum og leikjum 6 daga vikunnar. Þetta hefur tekið sinn toll síðustu vikurnar og margt hefur þurft að sitja á hakanum þess vegna. Börnin hafa vafalaust lengst nokkra sentímetra síðan ég sá þau síðast, Hulda stinnst, Arthúr fitnað og svona mætti lengi telja en eftir næstu helgi mun ég semsagt endurheimta eðlilegt líf mitt úr klóm íþróttaferilsins. Og þó ég glöð færi mínar fórnir á altari íþróttanna, eru önnur og meira aðkallandi verkefni sem að mér ýtast svo illt er orðið um andardrátt. Fyrst skal reynt að koma íbúðinni í almennilegt horf, svo skulu jólagjafir verslaðar, hár klippt og litað, augabrúnir vaxaðar og litaðar, táneglur fræsaðar, fjölskyldumeðlimir knúsaðir og jólin haldin inn á milli þessa alls. Ég fer til Kóreu á fimmtudag í fjóra daga, þá einn dag í Hong Kong og af stað til Singapore í þrjá daga - í Hong Kong í 6 daga og svo er ég farin til Nýja Sjálands og Ástralíu í þrjár vikur.
Ég líklega kem bara til með að sofa á Nýja Sjálandi því eftir því sem ég best fæ séð verður lítið um svefn næstu vikurnar. Úff úff úff, það er greinilega mánudagur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli