
Ég komst altso aftur í landsliðið. Ég nefni það ekki ógrátandi hvernig ég missti af maríuleiknum (er þetta "maríu" bara notað í laxveiðum?) í Tælandi um árið en eftir þrjár vikur fæ ég næsta tækifæri til að sanna mig í landsleik Hong Kong og Kóreu. Ég þarf að læra þjóðsöng Kína sem fjallar um að byggja múr og þramma fram í byssugin mótherjans en það má taka fram að söngurinn var þemalag gamallar myndar frá seinni heimstyrjöldinni og varð svona líka vinsælt að það var gert að þjóðsöng. Hugsa sér að ef Sódóma með Sálinni væri íslenski þjóðsöngurinn!
Mér finnst að íþróttafréttadeild Sjónvarpsins ætti að senda tökulið til Seoul og gera um mig heimildamynd áður en ég verð svo fræg að ég neita þeim um viðtal. Vantaði þig ekki hugmyndir í Kompás Brynja?? :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli