mánudagur, nóvember 05, 2007

Ökuskírteini

Já! Í morgun barst okkur HongÍsKongurum bréf um að loksins væri ríkisstjórn Íslands búin að berja það í gegn að Íslendingar þyrftu ekki lengur að taka bílprófið aftur þegar þeir flytja til Hong Kong en eins og frægt er orðið höfum við systkinin þurft að taka tíma í ökukennslu og nokkur próf áður en okkur var heimilt að aka um göturnar hér. Það gerðum við nú samt, ökuskírteinislaus því það þarf enginn okkur að segja að erfiðara sé að komast leiða sinna í lögregluríkinu HK heldur en að þræða vestfirskar klettabrúnir eða norður-þingeyska malarslóða.

Nú er bara spurning um hvort ég geti fengið íslenska ríkið til að endurgreiða mér þúsundin öll sem í ökutímana og prófið fóru fyrir tæpu ári síðan. Hæpið heldur mín.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli