þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Af naggrís og nýju sloti

Æi. Hann var og er naggrís, bara sköllóttur. Ferlegt.

Við sváfum fyrstu nóttina í nýju íbúðinni. Ég sagði Juddy frá íslensku hjátrúnni um fyrsta drauminn í nýrri íbúð en hann dreymdi ekki neitt sem hlýtur að boða gott. Við frömdum annars feng shui glæp með að snúa löppunum að hurðinni en ekkert slæmt gerðist. Höfum hugsað okkur að snúa á gamla Feng og snúa sitt á hvað, hvort með nefið í tásunum á hinu. Hvað ætli gerist þá?? Stór spegill brotnaði þegar þessir horuðu fluttu hann inn, er það nokkuð nema 10 ára óheppni? Ég held við verðum voðalega hamingjusöm í kotinu okkar litla.

Nú þarf Juddy bara að venjast því að hægja sér um leið og ég tannbursta, þá sparast allavega 4 mínútur í morgunsárið. Hann var orðinn svo spilltur af því að hafa eigið náðhús en í síðustu íbúð höfðum við tvö svo hvort um sig gat haft sína hentisemi morguns og kvölds. Nú verður þetta allt svo kósí og hyggeligt. Bjarki verður bara að mæta skitinn í matarboð.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli