mánudagur, nóvember 05, 2007

Rúgbý og blak

Ég kom heim frá Kóreu á föstudagskvöld í þéttskipaða dagskrá helgarinnar. Við áttum erfiðan leik fyrir höndum í rúgbýdeildinni þar sem við þurftum að keppa við þær sem nú eru efstar í deildinni og þekktar fyrir subbulegan leik. Við dustuðum rykið af bókunum um bellibrögð í rúgbýkeppni en það dugði ekki til, við töpuðum 20-7 eftir mikla baráttu, nokkra skurði og Tomma&Jenna kúlu á enni. Ég náði samt að beygja nokkra fingur lengur aftur en þeim er ætlað að fara og nú eru sumir andstæðingarnir hræddari við mig en þeir áður voru.


Íslendingahópur hefur yfirtekið íbúðina mína en Bjarki og Strúlla eru með 5 gesti í heimsókn - alveg hreint með eindæmum vinsæl. Þau héldu grillveislu uppi á þakinu fína sem þau eru búin að gera upp frá grunni alveg hreint glæsilega. Nú er ég enn ákveðnari í að fá mér fínt grill á mínar svalir - nema maður skyldi fá það í jólagjöf!


Á sunnudeginum tókum við þátt í blakkeppni á ströndinni á Lamma eyju. Þar búa aðallega hippar með sínar heimagrónu plöntur og bongótrommur. Ég hafði aldrei verið þar áður í dagsbirtu svo þetta var sérstaklega skemmtileg heimsókn á eina af eyjum Hong Kong. Ekki spillti fyrir að það var heiðskír himinn og heitur dagur, gott fólk samankomið og allir að spila blak. Mitt lið vann fyrsta leikinn nokkuð auðveldlega en hrokafull eftir frækilegan sigur töpuðum við öllum leikjum eftir það. Sumum þó einungis rétt svo. Við enduðum daginn á að sýna nokkra rúgbýtakta í staðinn og gerðum lyftiæfingar eins og sjá má hér að neðan.


Eftir allt þetta hreina loft og strandaæfingar datt ég út klukkan 10 um kvöld útfrá Desperate Housewives, enn söndug í skorum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli