föstudagur, október 03, 2008

Míníblogg

Það held ég að ljósmæður á Íslandi ættu að hætta að væla yfir launakjörum og drífa sig bara til Hong Kong. Hér vantar brjóstagjafasérfræðinga til að kenna öllum að gefa brjóst en áður var börnum bara gefin formúla sem nú hefur komið í ljós að inniheldur melamín. Þá vantar líka mjólkandi mæður sem mér skilst að séu hátt launaðar þessa dagana og þurfti ekkert verkfall til.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli