mánudagur, október 27, 2008

Kreppu-Saga

Saga heitir stúlkan.

Stutt og laggott, hæfir henni fullkomlega. Afi vinnur keppnina (sem aldrei var sett á) en hann giskaði á Sara. Saga Steindórsdóttir heldur áfram að vera fullkomið barn, sefur út í eitt og sýpur inn á milli, brosir og ræðir málin við þá sem eru eitthvað að glenna sig framan í hana. Ég féll í ást yfir sokkunum hennar og Juddy hefur miklar áhyggjur af eggjahljóðunum í mér. Saman stöndum við samt fast á því að ekki er kominn tími á okkur alveg enn og ljóst er að aðrir í fjölskyldunni munu fjölga sér á undan okkur.

Það er náttúrulega allt í lagi, auðvitað á að fara eftir aldursröð í þessu sem og skólagöngu og þótt Petra hafi ætlað að skjóta sér fram úr goggunarröðinni með brúðkaupinu forðum, er allt komið aftur í rétta röð og fólk mun fjölga sér og giftast eftir bókinni hér eftir.

Við buðum öllum í hádegismat í gær. Illa haldinn af svefnleysi og öðru setti minn maður allt í fimmta gír og töfraði fram þessa fínu máltíð, skar og steikti þar til allir voru mettir og afvelta á sófanum. Það er svo gott að eiga góða að, sér í lagi þá sem kunna að elda. Ég er illa að mér í eldhúsverkunum en það er nú í lagi, ég syng svo vel.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli