Hulda hefur enn engu barni gotið og líður nú að úldnun að hennar eigin sögn. Ég ætlaði að hjálpa til við rembinginn en það lítur út fyrir að ég missi af þessari fæðingu eins og hinum tveim. Ég fer til USA á morgun og telst mér til að á einni viku muni ég eyða 38 klst á flugi og 11,5 klst í lestum. Ég mun heimsækja 5 borgir á fimm dögum og hér dettur mönnum í hug að ég sé að gera þetta að gamni mínu!
Það er kannski bilun að vera að fara þetta í núverandi efnahagsástandi og það sýnist mér að ég muni bæði missa af einum helgidegi og einum fellibyl á meðan ég ferðast þetta eins og þeytispjald. Vonandi kem ég heim með marga samninga í töskunni og geri alla glaða í mínu fyrirtæki.
Hér eru myndir af fellibyl númer ég-veit-ekki-hvað sem stefnir á Hong Kong á mánudaginn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli