Hér er átakmikilli viku að ljúka og annasöm helgi tekur við. Markaðir í Asíu og víðar hafa tekið ófyrirséða kippi í allar áttir, skapa ringulreið á vinnustöðum og valda órólegum svefni. Við Justin erum þó róleg enn og kaupum allt út í krít eins og ekkert hafi gerst undanfarið. Alltaf að safna airmiles sko. Skattareikningurinn kom í vikunni og við fórum út að borða á McDonalds til að halda upp á vel útilátinn skattaafslátt sem allir HK þegnar fengu í ár frá ríkisstjórninni. Þá fá allir 5000ISK afslátt af rafmagnsreikningunum í hverjum mánuði í heilt ár og svona má lengi telja. Þetta 'give back to the public' system hefur komið sér vel og við sofum nú í vel kældu herbergi í boði Donald Tsangs. Já, það er ekki allt saman í járnum alls staðar enn.
Í kvöld er boðið upp á gleðiborgara á húsþakinu hjá Bjarka og Strúllu. Mamma og pabbi eru enn í heimsókn og á meðan er allt svo yndislega íslenskt, kokteilsósan og kannski smá malt með. Á laugardaginn ætla þau að horfa á mig í rúgbý, fyrsti 70 mínútna leikurinn sem ég spila síðan í Kazakhstan í júní - úff úff úff! Þetta verður frumraun nýju skóna sem ég er loksins komin með í hendurnar, fáum mynd:
Ef vel er að gáð er hægt að sjá leifar af síðasta glóðurauga, líklega því þriðja á árinu ef mér telst rétt til. Lífið er leikur....
....rúgbýleikur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli