mánudagur, október 20, 2008

Um allt og ekkert

Hér er farið að hausta og ég ekki enn búin að fara á sjóbretti í sumar svo heitið geti. Hitatölurnar eru farnar að detta niður í 25 gráður og í morgun fékk ég gæsahúð á leiðinni í vinnuna á mótorhjólinu. Sundlaugin lokar í 6 mánuði frá og með 1sta nóvember og ég þarf kannski að kaupa mér jakka fyrir veturinn. Ég er sem betur fer búin að kaupa hitateppi fyrir janúarhörkurnar en þar með er undirbúningur vetrarins að mestu upptalinn.

Tilveran er íslensk þessa dagana. Mamma og pabbi eru í heimsókn og komu með íslenskt nammi og ost með sér. Barnið er farið að brosa og fær kannski nafnið sitt síðar í dag. Mér finnst það öllu minna nú en þegar það kom út úr mömmunni en það er nú kannski bara rugl í mér. Hulda þykir mikill hippi í minni vinnu að hafa haft okkur öll viðstödd og alveg óheyrt um að börn séu innan um fæðingasérfræðinga með klippur og klemmur en þetta var allt eins náttúrulegt og eðlilegt og hugsast gat. Starri og Freyja dýrka litla böggulinn en eitthvað aðeins örlar á afbrýðissemi hjá hvuttanum.

Ég er farin að efast um sæti mitt í landsliðinu eftir að þungaviktakonur komu til keppninnar nýlega. Þetta kemur á versta tíma því ég er nýbúin að kaupa mér sérhannaða rúgbýskó í íslensku fánalitunum og stefndi á sérsmíðaðan góm - einnig í íslensku fánalitunum - og svo ég tali nú ekki um launaskerðinguna á krepputímum. Ég verð að vera aðeins duglegri og fljótari að hlaupa og þá er slæmt að eiga lakkrís í hornskápnum. Það væri betra að hafa hann við 100 metra markið.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli