Það er ekki komið nafn á dömuna en ég fékk SS pylsur í kvöldmat á sunnudag með íslensku sinnepi og remúlaði, sænskum steiktum lauk, heimatilbúinni kokteilsósu svo ég er bara sátt. Nafnið kemur fyrr en síðar skulum við vona, ekki er hægt að kalla hana Kreppu endalaust enda engin kreppa hjá henni á meðan næg er brjóstamjólkin.
Mikið svakalega værum við illa stödd ef Hong Kongísk yfirvöld gætu lesið íslensku og kæmust að þessu stórfelda smygli á mat í hvert sinn sem ættingjar og aðrir vandamenn kíkja í heimsókn.
Ég hef ekki enn fengið neitt nammi svo heitið getur en mér er sagt að það sé poki af einhverju sterku frá Elfu í farangrinum, ég hlakka mikið til að fá hann. Takk takk Elfa mín ef rétt er.
Ég fór illa í ræktinni í gær. Ég er ekki búin að fara í réttan mánuð vegna anna og ferðalaga en það er nú líklega engin afsökun samt...
Í ofurtrú á eigin lærum, dældi ég lóðum á stöng sem skellt var á bakið á mér og svo átti að beygja hnén og rétta sig við á ný. Nema ég réttist ekkert heldur hlunkaðist með látum í gólfið þegar lærisvöðvarnir gáfu sig undan hlassinu. Ó ó, hvílík smán og hneisa - mér leið líklega eins og Hallgrími í MA þegar hann fór í ræktina í fyrsta bekk en hann var kallaður BekkpressuBusinn meiripart skólagöngu sinnar eftir hann festist í bekkpressunni með alltof mikla þyngd.
Ég hugsa að ég fari á morgnana hér eftir, þá er kannski annað fólk en var þar í gærkvöldi. Mér til afsökunar var ég nýbúin að leika æfingaleik í rúgbý á móti U20 landsliðinu og hlaupa voða marga metra. Algerlega lakkríslaus.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli