miðvikudagur, júlí 27, 2005

Mín í Kína

Stórkostuleg ferð til Peking yfirstaðin. Hitti þær stöllur, Erlu Ósk og Þorgerði sem þar búa og héldu mér uppi og vel það í þessa 5 daga. Maður vaknaði meira að segja við muffins bakstur og heimagert túnfiskssalat!!!

Ég hafði komið áður til Peking svo ég lét þær nú nokkuð ráða ferðinni en dagskráin var þéttskipuð. Við fórum út að borða á fína staði, litum við á ýmsum börum en þeir eru nú ekki margir sem stelpurnar töldu vera skemmtilega. Á laugardeginum var enn verið að syrgja Beckham leysið en Real Madrid átti að spila á sama tíma og við ætluðum að vera í partýi á Kínamúrnum. Sem betur fer komumst við eftir á að Beckham hafði ekkert spilað svo ég missti ekki af miklu. Við vorum reyndar á báðum áttum með hvort við ættum að nenna þessu múrpartýi þar sem það hellirigndi og við orðnar löngu blautar í fæturna áður en við komumst út á rútubílastöðina. Við ákváðum svo bara að þetta ætti að vera verslunarmannahelgin okkar og keyptum okkur regnstakka og vodkapela.

Rútuferðin tók 4 tíma og í upphafi ferðarinnar var miðum dreift þar sem kom fram að fyrsta rútan aftur heim færi ekki fyrr en klukkan 3 um nóttina af stað. Þá var klukkan rétt um 19.00 svo við áttuðum okkur á að það væri langt djamm framundan! Allt í einu var klukkan samt orðin 04.30 og við ákváðum að kominn væri tími til að hundskast heim á leið. Þreyttar en sælar komumst við heim um 8leytið um morguninn og fleygðum okkur fram að hádegi. Þá var farið á gerviströnd, farið í erótískt nudd (vissum ekki um erótísku tendensana!), verslað og slappað af. Á sunnudeginum var okkur boðið í grillveislu hjá vini Erlu og Þorgerðar sem bjó í glæsikofa beint á móti einum Íslendinganna sem vinnur í sendiráðinu. Ekkert slor þar á ferðinni.

Ég var spræk og kát þegar ég kom aftur heim í heiðbláan himinn og 32 gráður, allt þar til ég kveikti á tölvunni. Nú sit ég við stífa vinnu og missi af æfingunni í kvöld því margt þarf að gerast áður en ég fer til Tælands á sunnudaginn. Jarrad var glaður að sjá kellu sína og heimtar nú að ég fari að hitta tengdó. Ég náði að hrista það af mér enn um sinn en ekki víst að ég komist upp með það lengi.

Myndir komnar inn.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli