miðvikudagur, júlí 20, 2005

Bekkan og Beckham

Ekki er ég fyrr búin að bóka miðann til Peking en að Beckham meldar sig sömu leið!!! Já góðir hálsar, Real Madrid verða að spila á laugardaginn og ég fer EKKI (!!!) á leikinn!!! Þetta er náttúrulega alger skandall en við þurftum að velja á milli þess að djamma á Kínamúrnum eða fara á fótboltaleikinn og þegar valið var sett í hendurnar á Þorgerði og Erlu var snögglega búið að kaupa miðann á vegginn. Greinilegt að þessar stúlkur eru ekki með forgangsröðina á hreinu!!!

Ég verð að láta mér nægja að freista þess að hitta hann í forboðnu borginni (úú, hljómar ekki illa) eða á Torgi Hins Himneska Friðar. Það er eins gott að Victoria sé ekki með í för því ég er ekki svo viss um að henni sé vel við okkur Rebekkurnar sem girnumst gæjann hennar. Ég fer allavega með settið úr Victoria Secret...just in case!!!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli