Er annars á leiðinni í Amazing Race, sem byrjar klukkan 2 og stendur yfir í 6 tíma. Við þurfum að leysa ýmsar þrautir út um alla borg, vísbendingaleikur sem er víst voðalega skemmtilegur og búið að vara fólk við því að klukkan 8 þegar allir eiga að vera búnir að koma sér til skila, munum við líklega öll vera:
- blaut
- sólbrunnin (það eru 32 gráður úti og sól)
- drukkin
- glöð
Ég er fyrirliðinn í mínu liði sem heitir the ICES sem er skemmtileg tilvísun til Íslands en jafnframt upphafsstafir þjóðernis allra í liðinu (Iceland, Canada, England and South Africa)
Þá er tilefni til að brosa hringinn þessa vikuna því ég er búin að bóka og borga miða til Peking í 5 daga ferð til Erlu og Þorgerðar sem ég þekki úr sitthvorri áttinni og nú búa saman í menguninni fyrir norðaustan mig. Þá er bara eftir að ganga frá smáatriðum í ferðaplani mínu til Tælands en þangað lítur út fyrir að ég skelli mér í rúmar tvær vikur í stað Íslandsferðar sem áður var skipulögð en reynist vera of dýr í samanburði við fíla, strendur, markaðina og sólina í Tæ.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli