Það er voðalega tímafrekt að vera svona kærasta. Ég hef að mestu tekið mér frí frá slíkum skyldum síðustu árin ef frá skyldu talin stutt og þýðingalítil ástarævintýri á stöku stað. En nú er ég aldeilis dottin í það. Ég er nú treg til stórra yfirlýsinga enda allar líkur á að fuglinn verði floginn áður en lesturinn er á enda en vegna fjölda áskoranna mun það upplýsast hér með að ég er frátekin þar til annað kemur í ljós.
Sá heppni heitir Jarrad og er af nýsjálensku kyni af bestu gerð. Hann er fæddur og uppalinn í Hong Kong og spilar rúgbý með liðinu mínu. Hann er voðalega góður maður þótt hann sé lögfræðingur að atvinnu og mennt. Hann er bara 27 ára gamall og heitir Toy Boy í símanum mínum. Fleira verður ekki sagt að sinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli