Hér er heitt!
Heitasti dagur ársins í fyrradag, fór upp í rúmlega 37 gráður en þegar rakastigið var tekið með í myndina var real feal 44gráður. Maður svitnar við það eitt að vera til. Þessi mikli hiti stafar af sumu leyti af typhoon sem er hér á lómi fyrir utan Hong Kong. Búinn að rústa einhverju greyið en að mestu leyti hættulaus. Allir voru að vona að hann kæmi nú hingað og gæfi okkur frí úr vinnu, en við fengum víst bara helliriginingu eina nóttina og heilmikið þrumuveður í staðinn.
Peking ferðin er að taka á sig mynd. Eftir stórar yfirlýsingar síðustu helgar um að hætta drykkju með öllu, var ekki svo auðvelt að lesa bréfið frá Þorgerði og Erlu uppfrá sem skipuðu mér að koma með amk 2 partýgalla en þær eru búnar að melda okkur í tvö partý, þar á meðal eitt á Kínamúrnum. Úff úff úff.
Ég fór á æfingu á mánudaginn sem er nú svo sem ekki í frásögu færandi. Nema ég braust í gegnum varnarmúrinn og átti að hlaupa með boltann yfir marklínuna og skora......en ég fór eitthvað hraðar í huganum en í alvörunni og vissi ekki fyrr en ég flaug á hausinn, datt um sjálfa mig. Var eina stelpan í liðinu svo það hefði verið ógeðslega flott að skora á móti öllum þessum strákum, en í staðinn fóru bara allir að hlægja að mér og ég fékk ekkert stig. Skömmustuleg ætlaði ég að hlaupa heim af æfingu og stytti mér leið í gegnum garð á leiðinni. Um hann liggur hlaupabraut sem ég sá tilsýndar og taldi tilvalið að stytta mér leið að á milli tveggja trjáa. Vissi svo ekki fyrr en ég lá vönkuð í grasinu með stingandi sársauka á báðum lærum. Hafði hlaupið á girðingu sem strengd var á milli trjánna og ég hafði ekki séð. Reyndar var það meira bara einn járnstrengur og ég er nú marin á báðum lærum, annað marið á stærð við lófann á mér og helblátt. Var í sundi svo í gær með bæði lærin til sýnis þegar einhver ókunnugur glotti og sagði "I would leave him".
Jarrad fannst það ekkert fyndið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli