föstudagur, ágúst 05, 2005

Tæland!!!

Stödd niðri á Phuket eyju í Tælandi svo það verður stutt í þetta skiptið.... Búin að haga mér eins og hinn versti túristi, láta flétta á mér hárið og setja í það extensions, fara á fílsbak og fékk meira að segja að sitja á hausnum/hálsinum á honum næstum allan tímann (!!!), versla eins og óð, leigja mér scooter í 2 daga, liggja í sólbaði, brenna eins og sönnum íslendingi sæmir og kaupa mér tsunami myndband. Fer yfir til Phi Phi eyju á mánudag og verð í 3 daga, hún varð einna verst úti hér í Tælandi og verður vafalaust áhugavert að skoða uppbygginguna sem er þar enn í gangi.

Skrifa aftur fljótlega, knús heim.

Bekkan

Engin ummæli:

Skrifa ummæli