miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Mikið að gera en fátt nógu merkilegt til að blogga um. Heilmikil vinna safnaðist upp á meðan ég var í burtu og þó ég viti fátt skemmtilegra en að hreinsa til í inboxinu mínu og skipuleggja í tölvunni, var ég orðin ansi þreytt þegar ég var búin að raða og ganga frá um 122 emailum. Samt varð ég ekkert glöð þegar kettirnir hans Jarrads átu sig í gegnum internet kapalinn og töfðu mína vinnu óendanlega mikið!!! Þeir eru að gera mig gráhærða (nöguðu sundur símahleðslutækið mitt líka!) og gráta gjarnan á nóttunni ef þeim leiðist. Þá eru þeir bæði feitir og frekar ljótir sem gerir hlutina bara verri. Aaarrrg!!

Allt lítur út fyrir að gestagangurinn haldi áfram. Bogga, Dóri og erfinginn stefna á Asíuferð á næstunni, Kristbjörg, Finna og Ólöf Elsa koma eftir tæpan mánuð og hollensku skiptinemaforeldrar mínir eru væntanlegir í október. Þá stefnir Þorgerður á að koma hingað í mánaðarvinnuleit svo tilveran verður með íslenskara móti á næstunni. Ég vona að allur þessi pirringur verði farinn úr mér áður en gestirnir koma.

Það er þó til að gleðja mig að Hulda, Steindór og börnin eru komin út aftur og Freyja búin að bjóða mér í sleepover um helgina. Bjarki bróðir og Silvija koma svo fljótlega út aftur og við getum glaðst í fjölskyldufaðmlögum á ný..........

Engin ummæli:

Skrifa ummæli