fimmtudagur, nóvember 13, 2008



Í morgun fór ég í ræktina sem ekki er í frásögu færandi nema ég var enn helst til sofandi þegar ég fór að heiman. Vinkona mín sem hafði komið til að sækja mig sofnaði á sófanum þar sem hún beið eftir að ég burstaði tennurnar, svo þreyttar vorum við en af stað höfðum við okkur og náðum í ræktina akkúrat þegar verið var að opna.



Svo gerðist það eftir nokkrar lóðalyftingar að ég missti hreinlega 12,5kg lóðin í hausinn á sjálfri mér og uppskar af þessu óhappi feikimikla kúlu! Ég er búin að læra mína lexíu og fer hér eftir á kvöldin þegar ég er búin að opna BÆÐI augun.





Engin ummæli:

Skrifa ummæli