þriðjudagur, nóvember 25, 2008

Færeysk morgunkorn

Færeyingar eru frændur góðir eins og sannast hefur nýverið. Mér þykir ekki úr vegi að hefja bloggin mín hér eftir á færeyskum fréttum í örfréttastíl. Legg ég eindregið til við aðkreppta Íslendinga að bókamerkja Dimmalætting og lesa sér til sáluhjálpar litla stund á hverjum degi, þar til óviðráðanlegar hláturrokur yfirtaka kropp og sál.

Þetta gæti tekið smá tíma til að byrja með á meðan við náum tökum á færeyskunni en mér reiknast svo til að venjari sé þjálfari og því sé hjálparvenjari aðstoðarþjálfari....Heiða verður mér innan handar vafalaust ef ég fer rangt með í framtíðarfærslum mínum.

24.nóv 2008
Fyrrverandi venjarin hjá Víkingi, Anton Skoradal, skal komandi kappingarár vera hjálparvenjari hjá NSÍ. Frekari fréttir á http://www.dimma.fo/

Engin ummæli:

Skrifa ummæli