"Áhugin millum íslendingar fyri evru og ES-limaskapi er minkaður í seinastuni. Men framvegis er ein meirluti bæði fyri limaskapi og nýggjum gjaldoyra, vísir ein nýggj meiningakanning".
Skoðanakönnun - meiningakanning
Aðild að ESB - ES limaskapur
Það er sem ég segi ykkur satt að nú skal ég lesa soldið í Dimmalætting á hverjum degi! Það virðist fátt vera í fréttum utan íþróttafrétta en landsliðið er að gera það gott. Um tíma hélt ég að ég væri kannski inni á íþróttasíðunni þeirra en flestar fyrirsagninar eru af sprikli einhverskonar.
Einmitt í dag var það mikilvægt að fá svona upplífgandi veflesningu. Ég hóf nefnilega morguninn á að lækka launin eins og reka annan en báðir hefðu líklega mátt fjúka í einu ef ekki væri fyrir jólin og annir framundan. Ég stýri ekki skútunni ein en um leið og ég finn annan fittari í hins stað fer sá stóri út sömu leið. Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt að reka fólk út á gaddinn og það svona rétt fyrir jól en þeir græddu þó á því að geta kennt efnahagsástandinu um ófarir sínar. Það er óhætt að segja að andrúmsloftið á skrifstofunni hefur oft verið betra. Væru allir jafn fleygir í færeyskunni og ég er séns að þeir sem eftir sitja myndu brosa út í annað en það er ljóst á ygglibrúnunum allt í kring um mig að þeir hafa aldrei séð eða heyrt um Dimmalætting, ljósið í myrkrinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli