Það eiga sér stað miklar og djúpar hugleiðingar um lífið, dauðann, tilgang heimsins og stefnu lífsins heima hjá mér þessa dagana. Við hnoðrumst saman á sófanum og veltum okkur upp úr heimspekilegum og margþátta áskorunum sem fyrir dyrum standa. Sófinn er aðeins of lítill til að rúma okkur bæði svo þægilegt geti talist, skankar og einstaka tá lafa framaf brúninni. Veturinn blæs 17 gráðum inn um gluggann og til tilbreytingar erum við ekki sveitt. Hann situr með klakapoka á ökklanum, ég næ fjarstýringunni með frekju.
Hver er sinnar kreppu smiður.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli