.... japanskt klósett.
Þvílíkur unaður! Vellíðan! Andvarp af ánægju, stunið af sælu.
Það var farið að hausta í Kyoto og kuldaboli beit í afturendann á annars frosnum Íslendingnum. Klósettferðir urðu að ánægjuefni en mikil tedrykkja hjálpaði til við þvagframleiðsluna. Um leið og ég settist á heita setuna (uuummmmm!) byrjaði vatn að seytla í róandi nið svo úr manni kreistist allur vökvi. Þegar það er orðið munaður að fara á klósettið þarf ég eitthvað að fara að hugsa minn gang hefði maður haldið?
Fáum mynd.

Þegar seytlið sjatnar er ýtt á bláan takka sem spúlar. Bjarki litli er í Indlandi mikið undanfarið og áfram, svona munaður er óþekktur þar.
Það þarf svo lítið til að gleðja mig :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli