mánudagur, nóvember 24, 2008

fimm fréttir

Jólin eru kominn á tuttugustuogsjöunduhæðina þar sem ég setti upp músastiga og jólakrans utan um kerti. Við systur fórum á jólabasar skandinavískan og átum saltlakkrís og smörrebröd. Tjernóbyl-rauð pylsa með steiktum lauk, remúlaði og smá hráum fór sömu leið og sælgætið, skolað niður með kók. Flest voru börnin ljóshærð og konurnar vel til hafðar, nema við Hulda sem fórum í strigaskóm og með sjúskað hár. Til útskýringar klæddist ég íslensku peysunni minni sem ég keypti af föðurlandsást í sumar og flestir kinkuðu til okkar kolli með meðaumkvun og skilningi á íslenskri kreppu. Hefðum við systur farið uppstrílaðar gæti verið að múgurinn réðist á okkur með inneignaplögg úr LandSpankanum svo það var vel valið að mæta eins og við ættum ekki aur.

Gærkveldinu eyddi ég við kertaljós að pakka inn gjöfum og komast í jólaskap. Flestar gjafirnar eru frá Kazakhstan en ég hef dreift jólainnkaupunum á árið allt sem kemur sér vel á þessum síðustu og verstu. Ég hef þó hætt við að gefa fólki Kazakhstaníska konfektið sem átti að fylgja hverri gjöf eftir að hafa prufukeyrt nammið á gestum sem ekki gáfu því góða einkunn. Það væri leiðinlegt að skemma fyrir fólki jólin með súru konfekti með beisku eftirbragði.

Ég komst í landsliðið á ný og fer í keppnisferð til Singapore í byrjun desember. Hann komst líka í landsliðið, karlamegin frá og á að fara til Brisbane í desember líka en svo teygði hann á einhverjum taugum sem liggja frá rassi niður í hnésbót svo það er ekki víst að hann komist með. Sjálf er ég að verða komin með nóg af bólgum og brakandi liðum svo ég ætla að njóta ferðarinnar í botn ef svo færi að þetta væri mín síðasta. Við spilum tvo leiki og ég er í byrjunarliðinu ásamt 14 öðrum skessum. Ég er loksins eftir 12 vikur í ræktinni farin að sjá móta fyrir upphandleggsvöðvum sem er gríðarlega ánægjulegt og hefði gjarnan mátt koma einum 8 vikum fyrr. Það verður seint sagt um mig að ég sé þolinmóð.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli