- Átti afleitan leik á laugardaginn, orkan að mestu farin í að sjá fyrir sér stórkostlegar tæklingar og mörk í slitróttum svefni alla vikuna. Ekkert mark frá mér semsagt en unnum með miklum mun (34-3) og kannski átti ég einhvern þátt í því.
- Eitthvað að rofa til í atvinnumálum, kannski ég þurfi ekki að leita á náðir Féló eftir allt saman. Ef allt gengur upp er ég hrædd um að karnivalið í Ríó bíði enn eitt árið. Ég ætla nú samt að spara allar yfirlýsingar fyrr en búið er að skrifa upp á einhverja pappíra. Auglýsi samt eftir hugmyndum að einhverju neutral nafni fyrir fyrirtækisrindil sem ég er að setja á stofn.
- Talandi um rindla, ég fór í kveðjupartý um síðustu helgi. Þar var mikið reynt að koma mér saman við ítalskan milljónamæring sem reyndist aðeins vera í Hong Kong yfir helgina. Það skipti hjónabandsmiðlarana í kring um mig engu máli enda eina sem þær virtust geta endurtekið var orðið "milljónamæringur". Ég er kannski ekki orðin nógu blönk til að horfa framhjá fitubornu hári og einnar krónu pickup línum.
- Nammið er að mestu gufað upp á hinn undarlegasta hátt. Eina vísbendingin sem mér hefur borist í þessu dularfulla hvarfi er gríðarlegur magaverkur sem hrjáði systur mína síðasta föstudagskvöld. Eftir nokkrar feiknarlegar rokur úr óæðri endanum virtust þjáningar hennar linast og hún stóð föst við þá fullyrðingu að hún hefði aðeins fengið sér einn pakka af Tópas. Ekki ætla ég nú að saka hana um lýgi og steliþjófnað svo ég auglýsi hér með eftir 150 grömmum af trompi og hálfum kúlusúkk poka (stórum).
- Börnin eru alltaf jafn yndisleg. Ég var í heimsókn hjá þeim í nýja húsinu um helgina og Freyjan vildi auðvitað leika sem mest við frænkuna. Við fórum í allskonar æfingar og reyndum að standa á höndum, fara í brú og hjólböruhlaup. Í ljós kom að ég er líklega búin að tapa barninu í sjálfri mér og missa hæfileikann til leikfimisæfinga. Ekki veit ég hvað verður um alla þessa orku sem ég einu sinni hafði. Bið að heilsa í bili.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli