miðvikudagur, desember 22, 2004

  • Jæja, jólin nálgast og ég er óvenju spræk. Ég verð hjá Huldu systur á aðfangadag og fékk að ráða einum jólasið (líklega hefur hún lesið bloggið mitt og kennt í brjósti um mig, einstæðinginn). Ég hef valið að það skulu verða bakaðar mömmukökur og skreyttar við undirspil Kirkjukórs Snartastaðakirkju og skjálfraddaða rödd Brynjólfs meðhjálpara í Snartarstaðasókn. Ég er nú á leiðinni heim að búa til deigið í þessar kökur, vona að ég klári mig fram úr því. Tók myndir af blúndubakstrinum, hann tókst ekki svo vel fyrr en í allra síðustu kökunum. Hér er mynd. Ofninn er hugsanlega eitthvað skakkur, þetta virðist hafa runnið eitthvað til!!!

  • Ég hef eytt síðustu þremur dögum heima hjá kúnnum hennar Huldu sem vantaði barnapössun yfir hátíðarnar. Mér er það nú enn betur ljóst hversu ólíkan hugsunarhátt fólk hefur og viðhorf til barneigna og uppeldis. Þetta eru tvær litlar stúlkur og foreldrarnir eru lögfræðingar bæði tvö. Þau líklega velta um eða yfir 5 milljónum á mánuði, búa í íbúð sem aldrei kostar undir milljón á mánuði að leigja, lifa hátt. Í skrifstofunni eru langar raðir bóka í hillum og ekki ein þeirra lítur út fyrir að hafa verið lesin. Bókatitlarnir eru áhugaverðir, "Rich dad, poor dad; Invest your money and get rich; Retiring early; World leaders and their strategies....." Það er víst ábyggilegt að þau hafa aldrei keypt sér Rauðu séríuna eða annað uppbyggilegt. Pabbinn vill sem minnst af barnadóti vita þótt hann sé mjög elskulegur í garð dætra sinna. Hann er búinn að fjarlægja batterí úr þessum 4 stykkjum sem gefa frá sér hljóð en þær eiga nær engin leikföng. Sú eldri á bara bækur og vídeó frá Baby Einstein fyrirtækinu og kann nú, 22 mánaða, að telja, alla stafina og fleira nauðsynlegt á þessum aldri. Barnadót má hvergi sjást þegar hann kemur heim úr vinnunni og þau eru meira að segja svo á móti barnadóti að þau hafa ekkert skiptiborð. Ég má gjöra svo vel og krjúpa á eldhúsgólfinu með börnin á litlu handklæði þegar ég skipti á þeim. Ekki er þó víst að þær bíði varanlegan skaða af þessu, greyin.

  • Síng dan fæ ló! eða Gleðileg Jól!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli