- Úff úff úff!!! Skita!!! tvö kíló af lakkrís lentu á borðinu hjá mér í dag með jólakorti frá Hugrúnu og Matta. Ótrúúúúlega þakklát, hugulsemin hrærir mig. Takk elsku Hugrún, Matti og bymbill. Hulda systir er líka þakklát, hún fær vitanlega sinn skerf.
- Fór annars með Huldu systur í jólagjafaleiðangur. Hún ætlaði að kaupa sér fáránlega dýr jólakort en nískupúkinn ég stoppaði kaupin. Sagði henni að í skranbúð við hliðina væru þau miklu ódýrari og það skipti engan máli hvernig þessi kort væru að utan, það væru myndirnar og bréfið innan í sem skiptu höfuðmáli. (við sendum gjarnan jólabréf). Hún fór eftir mínum ráðum og kom með 60 jólakort sem vissulega voru 90prósent ódýrari en þau sem hún hafði áður ætlað að kaupa. Þegar betur var að gáð, var ekki nóg með að í pakkanum væru færri kort en utan á pakkningunni stóð, heldur voru bara kortin tvö sem snéru út jólaleg!! Hin voru hin fyndnustu tækifæriskort með illa stafsettri ensku utan á. Sem dæmi má taka var eitt af blárri dúfu og undir stóð "how are you?". Annað var með grænum fjögra laufa smára og segir "one day this will be beautiful in your memory".
- Ég missti mig í hlátur en Hulda sá ekki gleðina. Hún reiddist mér bara og neitar nú að senda nokkur kort þótt ég segi henni að fólki fynndist þetta ábyggilega ekki neitt nema fyndið. Uppáhaldskortið mitt er með mynd af svíni utan á og á kínversku stendur "you pig! what have you been eating!?". Ég fékk kínverja til að lesa þetta fyrir mig, hún skildi ekkert í mér að kaupa svona dónalegt kort. Þaðan af síður sá hún að þetta var jólakort. ..... Þótt það standi "merry christms" aftan á því ... !!
- Búin að finna gleðina á ný........
Engin ummæli:
Skrifa ummæli