föstudagur, desember 24, 2004

Jólamáltíðin afstaðin og búið að opna pakkana. Takk kærlega fyrir mig, fullt af fallegum gjöfum og ég ætti að hafa nóg að lesa á næstunni. Börnin fengu lítinn hvolp sem ég og Hulda fundum í gæludýrabúð á Þorláksmessukvöld og féllum fyrir undireins. Kostaði formúu og því eins gott að hann lifi af veturinn.... Allar jólagjafirnar frá mér voru því mjög praktískar og þar af leiðandi leiðinlegar, hundamatur, skálar, naglaklippur og hárabursti. Er fallin í ást yfir honum og hef gefið leyfi fyrir því að hann sofi við hlið mér á gólfinu hér hjá Huldu. Það fór ekki svo þessi jólin að ég svæfi ein!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli