mánudagur, desember 13, 2004

  • Skil ekki enn hvernig á að láta textann halda þeim línubilum sem ég set inn, finnst leiðinlegra að hafa þetta allt svona í belg og biðu svo ég prófa þetta svona með punktunum.
  • Jólin eru alveg ferleg. Í þokkabót á ég afmæli mitt í öllum hátíðarhöldunum svo að á einni viku á allt að gerast - yfirleitt með skelfilegum afleiðingum. Ekkert nema Bon Jovi í afmælispartýið gæti mögulega staðið undir upptjúnuðum væntingum sem hafa fengið að krauma í heilt ár. Ég er ekki viss um að mamma og pabbi hafi gert ráð fyrir þessu þegar ég var getin.
  • Jólin eru enn verri ef þú ert einstæðingur. Fyrir utan augljósa punkta eins og pakkaleysi frá hinum eina sanna, þá er alveg spurning um hvor kosturinn sé betri, að halda jólin ein eða þurfa að kyngja annarra manna jólahaldi. Ekkert verður eftir þínu höfði og þótt maður sé velkominn á ýmsa staði þá er ekki beint eins og jólin standi og falli með nærveru einstæðinga.
  • Og ef einhver er í vafa, þá hefur jólablúsinn barið að dyrum........... merry sodden Christmas.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli