- Auðvitað vaknar maður með stóra bólu á afmælisdaginn. Þótt ég sé 28 ára og ætti kannski að vera komin yfir mesta bóluskeiðið. En í dag er hún yfir meðalstærð og það einmitt á þeim degi sem margar myndir eru teknar af manni. Nú dugar ekkert nema No Name. Í dag ætla ég að leika mér og hafa það gott. Ég ætla ekkert að halda inni bumbunni og borða allt sem mig langar í. Reyndar byrjaði ég á því fyrir nokkru, en það eru nú einu sinni jólin.
Ég er 28 ára og vissulega komin langt í lífinu. Landfræðilega séð. Ég hef tekist á við margt og unnið marga sigra, stundum tapað. Af listanum sem ég ætlaði að vera búin að klára fyrir þrítugt er nú fátt eftir, kannski ég þurfi að bæta einhverju við. Ég er voða hrifin af að gera tossalista og framtíðarplön. Ég geng með bók á mér á hverjum degi sem út í gegn er einn stór TO DO listi.
- Ég er búin að fá margar gjafir og vil koma á framfæri þökkum fyrir þær, símtöl, sms, email, og það "nýjasta" vefkort. Sérstaklega þykir mér vænt um gjafir sem voru keyptar með mig í huga, þ.e. hlutir sem kannski væru einskis virði öðrum en mér. Ég fékk DVD mynd með Beckham og stórt Beckham dagatal að auki. Ég fékk spil sem heitir "worst case scenario dating game" og teningaspil sem ég hafði víst þótt góð í eina kvöldstund á bar í Tsim Sha Tsui. Ég var sjálf búin að gleyma keppnisskapinu sem hljóp í mig og sigurgleðinni þegar það skilaði árangri en kanadísk vinkona mín sem með mér var þetta kvöld mundi eftir þessu og fór á stúfana. Þá fékk ég fallega mynd af okkur, April, Chrissy og mér frá Halloween kvöldinu innrammaða, ég fékk vín og kerti, uppáhalds dessertinn minn og risastóra köku senda á veitingastaðinn sem við fórum á. Ég fékk bæði nærföt og fjærföt. Mig grunar að fleiri gjafir séu á leiðinni og bíð spennt.
- Áramótin á næsta leyti svo hátíðarhöldunum linnir ekki í bráð. King Hei Fat Choi!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli