fimmtudagur, desember 30, 2004

  • Ótrúlegt alveg hreint að sjá myndir af atburðunum fyrir sunnan og vestan mig. Við erum ekki í neinni hættu hér, en Hulda systir og hennar fjölskylda var þarna fyrir réttum 3 vikum og ég var á leiðinni til Phuket í febrúarbyrjun en ekki er víst að það verði úr þessu. Gary vinur minn vinnur hjá breska sendiráðinu hér og er á sólarhringsvakt með sérstakan gemsa alla daga. Við vorum nýbúin að gantast með það að þessi sími hefði aldrei hringt en hann væri samt alltaf með hann á sér og voða passasamur með að hann yrði ekki batteríislaus. Svo gerðist það á afmælisdaginn minn að síminn hringdi og hann var boðaður samstundis út á flugvöll þar sem biði hans flugvél til að flytja hann á hörmungasvæðin til útgáfu neyðarvegabréfa fyrir þá sem misst höfðu allt. Við systur bíðum enn frétta af því hvort tvær fjölskyldur sem við þekkjum og eru á svæðinu hafi farið á kaf.

  • Annars er það úr Hong Kong að frétta að veturinn er genginn í garð. Hann kom sterkur inn um gluggann að morgni 28unda des í formi 13 gráða og golu. Nokkuð mikill munur á dögunum tveimur því þann 27unda voru 23 gráður og allir sáttir. Nú er hinsvegar kvöl og pína að fara á settið um nótt og þurfa að ganga um berfætt á flísunum sem verða ískaldar viðkomu enda hitinn ekki mikið hærri inni en úti við. Það er hrím á linsunum fyrstu mínúturnar á hverjum degi, voðaleg tilvera. Vonum að þetta blási yfir sem fyrst. Man ekki hvenær rigndi síðast, einhverjar vikur síðan. Nægir að sjá snjó í sjónvarpinu.

  • Það tekur á að eiga afmæli. Heillaóskunum rignir yfir mig um miðjar nætur þegar fólk sem ekki áttar sig á tímamismuni ákveður að gleðja mig. Auðvitað er ég mjög glöð. En ég er líka frekar þreytt þessa dagana. Það taka þeir til sín sem eiga.... híh! Farin í bælið....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli