mánudagur, febrúar 02, 2009

Nýtt ár, nýr mánuður

Jólin komu og fóru, afmælið mitt kom og fór, áramótin sömuleiðis og stuttu síðar fóru kínversku áramótin framhjá mér og yfir í dentid. Ég var jólin hér í Hong Kong, mest megnis í náttfötunum með bækur og sjónvarp til dægrastyttingar. Lofaði sjálfri mér að kveikja ekki á tölvu og stóð við það - datt inn á facebook í gegnum símann einstaka sinnum. Afmælið mitt hélt ég í Sai Kung, morgunmatur hjá Pusphu og fór með Arthur litla í gönguferð niður að strönd. Áramótin fyrri voru róleg, heimboð til vina í Hamingjudalnum og heim á skikkanlegum tíma aldrei þessu vant. Nú er ég nýkomin heim frá Tælandi þar sem ég var í stuttu fríi með manni og tveimur vinum yfir kínversku áramótin. Það var ósköp ljúft. Ég stoppaði í 12 tíma í HK og fór þá beint til Japan í vinnuferð - úff úff úff.

Nú er ég loksins komin heim aftur og punkteraði á bátnum hennar Huldu um helgina þar sem ég bætti upp svefnleysi og yfirvinnu undanfarna daga. Á 2,5 dögum í Tokyo náði ég 14 fundum og ýmsu fleira til, svo það var kærkomin hvíld að þurfa lítið að hugsa, tala eða yfirhöfuð gera þar sem við rugguðum til á flóanum um borð í Sólon Íslandus.

Ár nautsins er byrjað og rottan búin. Það getur bara boðað gott að sjá vinnusaman bolann taka við af lævísri rottu, ég óska öllum góðs nýs árs.
Kung Hei Fat Choi !

Engin ummæli:

Skrifa ummæli