Jú, það er komið vor. Rakastigið er í 95 prósentum, 25 gráður um helgina og nú er búið að leggja hitateppinu, loðbuxunum, te katlinum og teppinu á sófanum. Hér rigndi í fyrsta sinn í margar vikur á laugardaginn og lög gera ráð fyrir áframhaldandi vætutíð þar til monsún er búið. Ég fer að drífa mig í að kaupa sandala og opna skó sumarsins.
Þetta blogg er meira af skyldurækni en frásagnargleði gert því það er ekkert að frétta. Allt við það sama - Saga stækkar, Hulda minnkar, Freyja lengist og Starri græðir, Steini er fjarverandi, Bjarki er indverskur, Strúlla blómstrar, Juddy vinnur út í eitt. Ég er marin en spræk, ástfangin en ólofuð, yfirunnin en aflalítil.
Ég er undir ströngum fyrirmælum að elda meira heima hjá mér og kann því að meta allar einfaldar uppskriftir sem hægt er að henda yfir á pósti. Helst vantar mig eftirfarandi uppskriftir:
- góðar pönnsur
- fléttubrauð
- kók kjúkling
- aspargus kjúklíngarétt í ostasósu a la Petí
- kjötsúpu
- hvernig á að búa til kjötfars
- góða pastarétti sem eru ekki löðrandi í rjóma og osti
- allt hollt sem ekki inniheldur neitt bjánalegt á borð við linsubaunir, soya neitt, frauðplasts hrökk kökur og svo framvegis.
Svo langar mig bara að heyra í lille, ormurinn er hér enn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli