mánudagur, febrúar 23, 2009

Sætur sigur


Valley Black Ladies 2008-2009

Freyjan var stuðningsmaður númer 1
Ég og fótbrotin Liz frá Samoa svo glaðar með úrslitin

Við urðum Íslandsmeistarar í rúgbý í Hong Kong um helgina. Öll vinnan sem er búin að fara í æfingar, æfingaferðir, hlaup, tæklingar og ræktina skilaði sér þegar Valley Black Ladies unnu HongKong meistaramótið í rúgbý. Allir marblettirnir, glóðaraugun, slitin og sveigð liðbönd, þófar og brjósk hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar við vorum baðaðar í kampavíni og horfðum á hitt liðið gráta. Sögur segja að ein hafi enn verið að skæla á landsliðsæfingu morguninn eftir.

Liðið er eins og Sameinuðu Þjóðirnar, við erum frá:
Hong Kong
Singapore
Íslandi
Frakklandi
Englandi
Nýja Sjálandi
Samoa
Tonga
Lebanon
Svíþjóð
Brasilíu
Bandaríkjunum
Filippseyjum
Kanada
Ástralíu

Starri og Freyja voru mínir dyggustu stuðningsmenn og hlupu í spretti inn á völlinn í hverri pásu til að gefa mér vatn að drekka. Óheyrilegur hiti er orðinn hér svona snemma vors og ég verð alltaf jafn fjólublá í framan við áreynslu. Næstu átök eru um næstu helgi þegar ég tek þátt í 25kílómetra fjallaskoppi.
Við tvö sem förum þetta saman höfum æft okkur einu sinni og tókum þá 4ra kílómetra skokk. Ég keypti mér svo hlaupaskó um helgina sem vonandi hafa í sér fítonskraft og gott grip. Sjáum hvernig þetta fer nú allt saman, það er víst boðið upp á þyrluþjónustu fyrir uppgefna.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli