fimmtudagur, febrúar 26, 2009

Súpernóva!


Ég keypti mér hlaupaskó fyrir 25kílómetrana á sunnudaginn, alveg ægilega ljóta. Hér eru þeir. Ég á enn eftir að prófa að labba og hlaupa í þeim enda nægur tími til stefnu, allur dagurinn í dag og meiripartur morgundagsins. Þeir voru því miður ekki til í minni stærð svo tærnar fá að anda óaðkrepptar, það hlýtur að vera bara gott. Hálsinn er allur að koma til þótt það sé erfitt að horfa yfir hægri öxl, vonandi eru bara vinstri beygjur á leiðinni. Ég fékk styrk frá ríkum lögfræðingi til að hlaupa svo nú þarf ég að komast í mark. Þyrlulaust.
Úff úff úff.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli