þriðjudagur, maí 16, 2006

Filippseyjar



Filippseyjar komu engum á óvart í þetta skiptið frekar en þau hin sem við höfum farið þangað, hlýtt og gott, ódýrt, skítugt, fátækt og spilling. Drógum Bjarka bróður með okkur í nokkra daga og hann náði að kafa nokkrum sinnum út á gjafabréfið sem að öðru leyti var að mestu ónotað. Við Jarrad fórum eina köfun hvort og fannst það gaman, en vorum sátt við að fara lítið neðansjávar eftir það.




Við leigðum mótorhjól og fórum í rykugt ferðalag upp í "fjöllin" til að sjá "magnificent waterfall" en eins og svo oft áður, reyndist markaðssetning fossins hafa verið öllu stórkostlegri en fossinn sjálfur. Ég held bara að Dettifoss sé eini fossinn sem ég hef séð sem er jafn hrikalegur í raun og hann sýnist á myndum.

Vikan leið hratt í leti og lestri góðra bóka/sorptímarita. Hver veðjar svo á að Brad yfirgefi Angelinu?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli