sunnudagur, maí 21, 2006

Ræfill


Ég er óttarlegur ræfill þessa dagana og geri lítið nema hvíla löppina, spila jawbreaker (leikur í símanum mínum) og éta óhollt. Hulda systir varð að toppa mig í þessu sem og öðru og er rúmliggjandi með klossað bakið. Freyjan var hjá mér í sleepover og hugsaði voðalega vel um frænkuna. Ég fékk pedicure á þessar fimm tær sem ekki eru í gifsi, mörg knús og þegar við þurftum út í rigninguna hljóp skottan við hliðina á mér og hélt uppi regnhlífinni fyrir okkur báðar - rétt eins og litla geishan í Endurminningar Geishu.

Nú tekur við undirbúningur Íslandsferðarinnar, ég flýg á þriðjudag til London og eyði einum degi þar í umsjá Damians. Þangað til verð ég upptekin en ég á eftir mörg verk og flest taka þau langan tíma á hækjunum. Ég telst vera orðin nokkuð sleip í hækjuhoppi ef frá er talið lítilvæg flugferð sem ég tók í morgun þegar önnur hækjan lenti á hálli stétt. Grét í laumi en Freyju var svo brugðið að ég varð að harka af mér. Er með það á sálinni að ef brotið grær ekki rétt saman aftur verður mér skellt á bekk á sjúkrahúsinu og löppin brotin aftur upp!!! Fæ martraðir þessu að lútandi.

Símanúmerið mitt á Íslandi verður 867 0728 og ég tek glöð á móti símtölum frá fimmtudegi klukkan 16.00 onwards. Er annars farin að pakka niður í bakpokann, takmarkað magn sem ég get borið áður en það fer að hafa áhrif á jafnvægið á hækjunum svo líklega verð ég bara í sömu fötunum fyrstu 7 dagana. Hef beðið um Meet And Assist á flugvellinum í London svo mér verður heilsað með hjólastól og sérskipuðum burðardreng fyrir bakpokann. Ef maður er ekki fyrsta flokks ræfill þá veit ég ekki hvað....

Engin ummæli:

Skrifa ummæli