föstudagur, maí 26, 2006

London part 1

Jah, hver hefði haldið að London væri hefði bara verið bærileg í þetta skiptið. Ég lenti snemma morguns eftir 12,5 klukkustunda flug þar sem ég svaf eina 10 tíma og fór frekar létt með. Fékk heila sætaröð fyrir mig og löppina sem þurfti að vísa upp í loft, goggles fyrir augun og svo var bara sofið út í eitt. Vaknaði reglulega samkvæmt læknisráði til að nudda löppina, kreppa tærnar og skreppa á klósettið en alltaf datt ég út eins og ljós um leið og ég lagðist niður á ný. Yyynnndislegt.

Þegar ég kom út úr vélinni átti að bíða mín hjólastóll en einn gamall Manchester búi ákvað að þetta væri tilvalið ökutæki fyrir sig og sínar þreyttu áttræðu lappir og tók stólinn beint fyrir framan augun á mér. Ég beið róleg eftir næsta stól. 4 stólum/ökutækjum síðar var ég komin með bakpokann minn í fangið ofan á tölvutöskuna og annan lítinn bakpoka, destination Icelandair. Þar sem Icelandair er í allt öðrum brottfararsal, þurfti ég að fara með bus sem sértilgerður var fyrir krypplinga. Bílstjórinn hlóð á mig farangrinum beint fyrir utan terminal 1 og óskaði mér góðs gengis með þetta allt saman. Mér fannst nú kannski að hægt væri að hjálpa mér greyinu með draslið yfir götuna og upp að deskinu sem hann sagði að væri bara rétt innan við dyrnar en hann hafði annars verið hjálplegur svo ég lét það ónefnt. Ég hökti af stað með hleðsluna á bakinu.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli