föstudagur, maí 26, 2006

London part 3

Þar sem ég var þarna í símanum bar bílstjórann úr krypplingastrætónum að sem skildi ekkert í mér að vera þarna úti á stétt ennþá, löngu eftir að hann hafði skilið við mig. (Konan í símanum stóð föst á því að ég væri á réttum stað því Icelandair væri víst í brottfararsal 1). Ég sagði honum sorgarsöguna og hann sagðist skutla mér á réttan stað, terminal 1. Sagði þennan misskilning allan standa af því að Icelandair væri nýbúið að skipta um terninal en hér sit ég nú samt á sama stað og fyrir 2 árum og bíð eftir að tékka mig inn. Því miður eru 5 tímar í brottför og því er ég hér strönduð næstu 2 tímana þar til ég get losað mig við farangurinn. Mitt einasta vandamál í augnablikinu er hversu hrottalega ég þarf á klósettið!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli