Þá erum við hjónaleysin komin heim úr enn einni ferðinni sem í þetta sinn var til Ástralíu og Nýja Sjálands. Bróðir Márans eignaðist lítinn dreng sem við fórum að heimsækja en þetta er stórmerkilegur drengur fyrir það eitt að hann er fyrsti sonurinn í þessari kynslóð Temaranna og því höfðingjaefni ef allt færi eftir uppskriftunum ættbálksins. Þetta 50 sentimetra kríli ber nafnið Zavia Eurera Tokawhakaea Temara og þótti móðurættinni ekki alveg nóg um heldur vildu þau klína á hann nafninu Murray líka! Þetta er líka fyrsti drengurinn þeirra megin í langan tíma svo ömmur og afar eru í stríði um barnið og bæði sett vildu helst taka hann að sér til að ala hann upp. Það gerist víst oft.
Juddy lét varla barnið frá sér þennan tíma sem við vorum þar en sá stutti kunni bara vel við knúsin sýndist mér. Það er vetur á Gullströndinni í Ástralíu en blár himinn, sól og fínasta veður yfir daginn. Á kvöldin kólnaði töluvert og gamalkunnugt vandamál gerði vart við sig - frosnar tær. Þá er gott að hafa lærisþéttan Márann til að ylja sér við.
Eftir stutta dvöl í Ástralíu flugum við yfir til Lands Hins Langa Hvíta Skýs (The Land of the Long White Cloud) eða Aetoaroa eins og NZ heitir á máli frumbyggjanna. Fyrsta stop var á McDonalds á flugvellinum þar sem við fengum okkur Kiwiborgara (Nýsjálendingar eru kallaðir Kiwis eftir fugli sem býr bara á Nýja Sjálandi). Kiwiborgari er eins óhollur og aðrir Makkar en þessi er með rauðbeðum og tómatsósurelish og einhverju öðru sem bara heimamenn kunna að meta.
Mikið var nú gott að komast til Rotorua, heim til tengdaforeldranna. Yndislegt fólk alveg hreint og úr gulli gerð. Nýja Sjáland er ekki alls ósvipað Íslandi og ég naut þess að drekka góða mjólk, borða kvöldkaffi, drekka ískalt vatn úr krananum, skafa bílinn á morgnanna, hengja út þvott sem þornaði á 2 tímum, ganga um með eyrnaband og í dúnúlpu, anda gufu, horfa á sjónvarp og lesa bækur. Við fórum í golf þrisvar sinnum og ég er farin að ná aðeins betri tökum á sveiflunni. Kannski þetta hobbý taki við af rúgbýinu þegar við getum ekki lengur hlaupið á fólk af krafti.
Jarðaförin hans Tiki´s var nokkuð sérstök en hún fór fram á márísku í samkomuhúsi máranna sem kallast marae. Þar safnast saman hópur af gestum sem heimamenn bjóða velkomna með bænum, hótunum og sérstökum vopnaburði. Gestirnir þurfa að svara með svipuðum hætti og allir fara inn í húsið þar sem líkið liggur fyrir allra augum. Ættingjar sitja allt í kringum kistuna á gólfinu og gráta hástöfum á meðan konurnar koma sér fyrir á gólfinu fyrir aftan sætin sem frátekin eru fyrir alla karlmenn. Eftir nokkra stund er gólfið opið fyrir gestina en aðeins eldri karlmenn mega tala. Þeir halda ræðu um himinninn, jörðina, guðina, forfeðurna, lífið og aðeins um þann sem er dáinn. Á meðan gráta konurnar í kór en þetta er kallað wailing. Eftir hverja ræðu er sungið lag og þá mega konurnar líka syngja. Annars er þessi athöfn mestmegnis framkvæmd af karlmönnunum. Þegar um 5 ræður hafa verið fluttar standa allir upp og fjölskylda hins látna raðar sér upp en allir gestirnir eiga þá að ganga röðina og kyssa konurnar og hongi karlana (márakveðja þar sem maður þrýstir nefinu og enninu upp að nefi og enni hins). Það er siður hjá þeim að kyssa fólk á munninn og þótt það séu alls ekki allir sem gera það, þá var það sérstakt að sjá allt þetta fólk að kyssast á munninn, vitandi að margir hafa aldrei hist áður.
Þetta ferli er endurtekið aftur og aftur í þrjá daga samfleytt því vinir og vandamenn þess látna og fjölskyldu hans koma á mismunandi tímum. Aumingja Nicki Jean, konan hans Tiki´s þurfti að sitja og opinberlega syrgja manninn sinn fyrir framan allt þetta fólk í marga daga í einu og því ekki að undra að hún var orðin frekar veikburða undir það síðasta. Margir gista í marae alla dagana í kring um jarðaförina og brúðurin sefur við hliðina á líkinu í tvær nætur fyrir framan alla. Ég ber virðingu fyrir siðum og venjum máranna en ég rétt vona að Juddy ætlist ekki til að hans útför verði að þessu sniði ef hann fellur frá á undan mér - ekki viss um að ég gæti gengið í gegnum þetta allt.
Eftir jarðaförina fórum við ásamt þremur öðrum pörum á skíði sem var alveg ótrúlega gaman ! Ég tók að mér að kenna fjórum sem aldrei höfðu farið á skíði áður undirstöðuatriðin og líklega var það mun skemmtilegra en að renna sér í stóru brekkunum því þau voru svo vonlaus að ég fékk krampa í magann af hlátri þegar þau runnu með lappirnar í sitthvora áttina bjargarlaus. Juddy skellti sér á bretti og eins og með flestar aðrar íþróttir reyndist þetta ekki vera vandamál fyrir hann. Eftir nokkrar ferðir var hann eins og hetja og þótt hann hafi tvisvar flogið á hausinn harkalega, var ég ótrúlega stolt af honum. Hann var ekki alveg jafn glæsilegur á skautunum sem hann var líka að prufukeyra í fyrsta skiptið..... Það var gaman að vera loksins best í einhverju og þótt ég sé engin Ingimar Stenmark þá voru skíðataktarnir mínir öllu glæsilegri en þeirra sem lágu stanslaust flöt með lappirnar beygðar í ómögulegar áttir.
Þetta reyndist hið besta frí og það er erfitt að koma sér í vinnugírinn aftur. Ég skrifa meira um ferðina síðar en nú er kominn tími til að vinna fyrir salti í grautinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli