Ég lærði ný orð í márísku í vikunni þar sem við höfum verið upptekin við að hjálpa til við undirbúning jarðafarar Tikis. Jarðaför = tangi.
Á föstudaginn fékk ég flugin staðfest og við förum á miðvikudaginn í þessari viku af stað. Ætlum að stoppa í Brisbane í Ástralíu hjá Aubrey og Melissu sem er bróðir Márans og konan hans. Þau eru nýbúin að eignast lítinn máralíng sem heitir Zavia Eruara Tokawhakaia Temara sem við ætlum að taka út en hann hefur víst ógurlega stórar hendur. Við stoppum í Ástrallalíu í 4 daga. Þá förum við áfram til Nýja Sjálands og ég er búin að kaupa skíðagalla svo það er eins gott að farið verði á skíði! Ég gæti kannsi hugsað mér að prófa snjóbretti aftur þar sem ég er nú orðin bonafied sjóbrettagella en það á víst að vera eitthvað svipað. Það er bara þetta með 30gráðu hallann sem fer með mig í hvert sinn og að þurfa að fara niður hann á hlið er eitthvað svo scary!
Á sunnudaginn fórum við fjórar stelpur og einn strákur heim til Tiki sem dó og pökkuðum niður flestu í íbúðinni. Nickie er enn á Jamaica að reyna að leysa út líkið og koma því heim til Nýja Sjálands og vonir standa til að það gerist á laugardaginn næsta. Þetta mál er búið að koma í fréttunum um allan heim enda mjög fátítt að túristar séu myrtir á Jamaica þótt heimamönnum finnist mikið gaman að skjóta aðra heimamenn. Þarna búa 2,6milljónir manna og morðtíðni er með því hærra í heiminum eða 1610 morð á ári (nokkur á dag semsagt) en eins og ég sagði þá er þetta óvenjulegt að því leyti að útlendingar eru alla jafnan látnir í friði. Þetta hefur verið einhver ógurlega fínn gemsi sem hún átti eða þeir svona voðalega í spreng að fá að hringja.
Heima hjá þeim þurftum við að framkvæma whakanua sem er blessun Máranna yfir heimili þeirra sem deyja. Ngawai fór með bænir á márísku og við gengum í röð, berfætt með aðra hendina á vegg og þurftum að labba allan hringinn í íbúðinni svo hendin snerti alla veggi heimilisins. Fyrir utan hurðina og aftur utan við blokkina þurftum við svo að skola hendur með vatni og flikka soldlu vatni yfir sitthvora öxlina, best var ef soldið færi líka framan í mann. Ég gerði bara eins og hinir en ég kann ekki alla þessa siði enn þó ég vissi þetta með vatnið því þeir gera það líka eftir að fara í heimsókn í kirkjugarðinn. (allir kirkjugarðar eru með vatnsflösku bundna á streng fyrir utan hliðið). Þessi bænastund og athöfn er kölluð whakanua.
Koha er svo sjóður sem ættingjar, vinir og aðrir sem vilja geta lagt til fyrir útgjöldum þegar einhver fellur óvænt frá. Í þessu tilviki eru útgjöldin gríðarleg því bróðir Tikis og frændi fóru um leið frá Nýja Sjálandi til Jamaica til að vera hjá Nickie og hjálpa til. Það er engin bein leið þar á milli og kostnaðurinn mikill. Því næst þurfa þeir að koma líkinu til Nýja Sjálands en tryggingin sem er keypt hér, stendur bara straum af þeim kostnaði sem fellur til að flytja hann aftur til Hong Kong. Það vilja þau náttúrulega ekki svo líklegast þurfa þau sjálf að borga allt. Við stöndum nú fyrir söfnun fyrir þau en þetta mál hefur vakið mikila athygli og ýmis samtök hafa boðið fram fjárhagsaðstoð. Tiki var alinn upp af ömmu sinni sem á ekki mikið og er bara gömul márakona sem talar bara Maori. Þetta er allt voðalega sorglegt en Nickie stendur sig ótrúlega vel.
Nú er best að halda sig við mahi (vinnuna) enda margt að gera áður en farið er í 2ja vikna frí.
Aruhanui,
Bekka
Engin ummæli:
Skrifa ummæli