fimmtudagur, júní 23, 2005

Hér rignir og rignir. Mér reiknast til að ég sé búin að kaupa 42 regnhlífar í öllu mínu lífi og þó mátti ég fara óvarin út í morgun. Ég man nefnilega aldrei eftir að taka þær með mér heim aftur nema enn rigni svo nú hef ég skilið eftir 4 eftir á ýmsum stöðum í Hong Kong....á einni viku....
Þrumur og eldingar dynja yfir Hong Kong og þó hefur enginn typhoon komið á þessu ári. Flestum ber saman um að þetta veðurfar sé heldur óvenjulegt en þó er ekki lengra síðan en í júlí 1997 þegar rigndi samfellt í mánuð og hófst kaldhæðnislega á 1.júlí, daginn sem Bretar afhentu Kínverjum lyklavöldin í Hong Kong. Himnarnir grétu.

Ég er nú orðin club captain fyrir stúlkurnar í liðinu mínu og fæ að belgja mig út á fundum. Fyrst á dagskrá hjá mér er að laða að fleiri stúlkur í liðið en okkur skortir 5 liðsmenn ef vel á að vera. Ég lagði nú til að við pæjurnar sæjum um recruitment fyrir karlaliðið og þeir fyrir okkur en þegar við hugsuðum okkur betur um ákváðum við að karlpeningurinn í klúbbnum væri ekki nógu aðlaðandi. Fyrir liggur hjá okkur stúlkunum að klæðast strigapilsum og bikinitoppum á háannatíma hverfiskránna í von um að finna nógu drukknar stúlkur til að skrá sig í rúgbý. Það finnst kannski ekki öllum líklegt til að skila árangri en ég skal sjálf vitna um að þannig skráðist ég í Aberdeen Rugby Club.

Annars er það helst að frétta að Hulda systir kveikti í sjálfri sér, börnin fóru til Íslands, Bjarki bróðir er líklegast fluttur til Hong Kong, ég er byrjuð aftur í blaki, og ú ú, á kærasta :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli