þriðjudagur, júní 14, 2005

Reunion

Á sumrin er ekki óalgengt að kalla saman hópa sem ekki hafa sést lengi í svokallaða endurfundi eða reunion. Þannig er maður óþægilega minntur á að það eru 15 ár síðan ég fermdist, 8 ár síðan ég útskrifaðist úr menntaskóla og 3 ár síðan ég kláraði háskólann. Nostalgíufíklar á borð við sjálfa mig hafa mjög gaman af svona mótum enda gefa þau manni löggilda afsökun fyrir að liggja yfir myndum og rifja upp gömlu góðu dagana sem oft voru ekkert betri en ljúfa lífið sem ég lifi í dag. En sweet er það samt.

Ég fór á svona endurfundamót um daginn. Með systkinum mínum. Já, við höfðum ekki sést í rúm tvö ár alle sammen og nú halda einhverjir sjálfsagt að hópurinn sé stór og aldursdreifður. Við erum bara fjögur og öll á svipuðum aldri (þó ekki þroska). Petra systir fór frá Hong Kong daginn sem Bjarki kom en við náðum að borða saman systkinin með einstaka afleggjara með okkur (Nóa og Silviju). Voða gott að hittast og bera saman hvort við eldumst ekki öll á svipuðum hraða og hver líkist hverjum mest. Allt var nokkuð óbreytt frá síðasta hittingi, þessar ljóshærðu voru enn ljóshærðar, þessi brúnu voru áfram brún, allir eins og unglingar enn.

Myndir hér.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli